Ferill 72. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


126. löggjafarþing 2000–2001.
Þskj. 72  —  72. mál.




Fyrirspurn



til iðnaðarráðherra um þriggja fasa rafmagn.

Frá Drífu Hjartardóttur.



     1.      Hversu margir hafa fengið aðgang að þriggja fasa rafmagni undanfarin þrjú ár, greint eftir kjördæmum?
     2.      Var þeim sem fengið hafa slíkan aðgang á þessum tíma forgangsraðað á einhvern hátt?
     3.      Hver hefur verið kostnaður við að tryggja núverandi aðgang að þriggja fasa rafmagni?
     4.      Hvernig er gert ráð fyrir að aðgangur landsmanna að þriggja fasa rafmagni þróist á næstu árum?


Skriflegt svar óskast.