Ferill 84. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
126. löggjafarþing 2000–2001.
Þskj. 84 — 84. mál.
Fyrirspurn
til dómsmálaráðherra um umferðaröryggismál.
Frá Ástu R. Jóhannesdóttur.
Hvað líður eftirtöldum þáttum í umferðaröryggisátaki því sem ráðherra kynnti á blaðamannafundi nú í júlí:
a. að fjórir lögreglumenn verði ráðnir til umferðardeildar ríkislögreglustjóra,
b. að fjórir vegaeftirlitsbílar sinni eftirliti á þjóðvegunum?