Ferill 113. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


126. löggjafarþing 2000–2001.
Þskj. 113  —  113. mál.




Fyrirspurn



til forsætisráðherra um áhrif atvinnu- og þjóðfélagsbreytinga á stöðu kvenna á landsbyggðinni.

Frá Ragnheiði Hákonardóttur.



     1.      Hvernig var staðið að könnun á vegum forsætisráðuneytisins á áhrifum atvinnu- og þjóðfélagsbreytinga á stöðu kvenna á landsbyggðinni, sbr. lið 1.3 í þingsályktun um framkvæmdaáætlun til fjögurra ára um aðgerðir til að ná fram jafnrétti kynjanna sem samþykkt var á Alþingi 28. maí 1998?
     2.      Hverjar voru meginniðurstöður þeirrar könnunar?
     3.      Hvernig hefur verið unnið að því að hrinda þeim í framkvæmd?


Skriflegt svar óskast.