Ferill 129. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


126. löggjafarþing 2000–2001.
Þskj. 129  —  129. mál.




Fyrirspurn



til dómsmálaráðherra um undirbúning gildistöku Schengen-samkomulagsins.

Frá Steingrími J. Sigfússyni.



     1.      Er sérstakur undirbúningur hafinn af hálfu ráðuneytisins og undirstofnana þess vegna væntanlegrar gildistöku Schengen-samkomulagsins á næsta ári með tilliti til baráttunnar gegn innflutningi fíkniefna?
     2.      Er enn áætlað að fyrirhuguð tímasetning gildistöku Schengen-samkomulagsins hér á landi standist?