Ferill 142. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
126. löggjafarþing 2000–2001.
Þskj. 142 — 142. mál.
Fyrirspurn
til forsætisráðherra um hlutfall kynjanna í nefndum og ráðum á vegum ríkisins.
Frá Hólmfríði Sveinsdóttur og Ástu R. Jóhannesdóttur.
1. Hvernig er kynjahlutfallið í nefndum og ráðum sem nú starfa á vegum ríkisins?
2. Hvernig er kynjahlutfallið sundurliðað eftir ráðuneytum?
3. Hvernig er kynjahlutfallið sundurliðað eftir kjördæmum?
4. Hvernig skiptist launakostnaður ríkisins vegna nefnda og ráða á milli kynjanna?
5. Hve margar konur eru formenn nefnda og ráða sem nú starfa á vegum ríkisins?
Skriflegt svar óskast.