Ferill 205. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
126. löggjafarþing 2000–2001.
Þskj. 215 — 205. mál.
Fyrirspurn
til dómsmálaráðherra um starfsmenn Landhelgisgæslunnar.
Frá Guðmundi Hallvarðssyni.
1. Hve margir störfuðu hjá Landhelgisgæslunni á tímabilinu 1. janúar 1998 til 1. september 2000 og hver var launakostnaður þeirra, sundurliðað eftir störfum við:
a. þyrlur,
b. gæsluflugvél,
c. varðskip,
d. annað?
2. Hver var kostnaður Landhelgisgæslunnar á fyrrgreindu tímabili af endurmenntun:
a. flugmanna,
b. flugvirkja,
c. skipstjórnarmanna,
d. vélfræðinga,
e. annarra starfsmanna (sundurgreint)?
Skriflegt svar óskast.