Ferill 220. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
126. löggjafarþing 2000–2001.
Þskj. 234 — 220. mál.
Fyrirspurn
til samgönguráðherra um útselda þjónustu Siglingastofnunar við hafnir.
Frá Guðmundi Hallvarðssyni.
1. Hver er gjaldskrá útseldrar þjónustu Siglingastofnunar við hafnir, sundurgreind eftir tegund þjónustu á klukkustund?
2. Hvert er einingarverð á klukkustund fyrir framangreinda þjónustu ef reiknaðir eru eftirtaldir gjaldaliðir:
a. stjórnunarkostnaður stofnunarinnar,
b. skrifstofukostnaður,
c. laun,
d. launatengd gjöld,
e. lífeyrissjóðsgjöld,
f. húsnæðiskostnaður,
g. bifreiða- og ferðakostnaður,
h. tölvukostnaður (afskriftir og rekstur),
i. kostnaður við yfirvinnu,
j. símakostnaður,
k. tryggingar?
Skriflegt svar óskast.