Ferill 236. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
126. löggjafarþing 2000–2001.
Þskj. 254 — 236. mál.
Fyrirspurn
til sjávarútvegsráðherra um dragnótaveiðar í Faxaflóa.
Frá Guðjóni Guðmundssyni.
1. Hve mikill dragnótarafli barst á land úr Faxaflóa sl. fjögur fiskveiðiár, sundurliðað eftir árum og fisktegundum?
2. Hvar var aflanum landað og hve miklu á hverjum löndunarstað, sundurliðað eftir árum?
Skriflegt svar óskast.