Ferill 247. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
126. löggjafarþing 2000–2001.
Þskj. 272 — 247. mál.
Fyrirspurn
til iðnaðarráðherra um frekari lækkun húshitunarkostnaðar árið 2001.
Frá Kristjáni L. Möller.
1. Hvernig verður staðið við fyrirheit um áframhaldandi lækkun húshitunarkostnaðar árið 2001, sbr. 12. tölul. í þingsályktun um stefnu í byggðamálum fyrir árin 1999–2001 sem samþykkt var á Alþingi 3. mars 1999?
2. Eru uppi áform um að notendur dýrra hitaveitna njóti niðurgreiðslna til samræmis við notendur rafhitunar?