Ferill 258. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
126. löggjafarþing 2000–2001.
Þskj. 285 — 258. mál.
Fyrirspurn
til heilbrigðisráðherra um endurhæfingardeild Fjórðungssjúkrahússins á Akureyri á Kristnesspítala.
Frá Árna Steinari Jóhannssyni.
1. Hversu margir njóta endurhæfingar á Kristnesspítala árlega?
2. Hefur Kristnesspítali getað þjónað öllum þeim Norðlendingum og Austfirðingum sem óskað hafa eftir endurhæfingu þar?
3. Hversu margir Norðlendingar og Austfirðingar njóta endurhæfingar annars staðar en á Kristnesspítala árlega og þá hvar?
4. Eru áform uppi um að auka þjónustu Kristnesspítala þannig að unnt verði að þjóna þeim Norðlendingum og Austfirðingum sem á endurhæfingu þurfa að halda?