Ferill 290. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


126. löggjafarþing 2000–2001.
Þskj. 321  —  290. mál.




Fyrirspurn



til utanríkisráðherra um hreinsun og afhendingu neðra Nickel-svæðisins í Reykjanesbæ.

Frá Kristjáni Pálssyni.



     1.      Er ráðherra kunnugt um áætlaðan kostnað við hreinsun neðra Nickel-svæðisins svo að landið verði byggingarhæft?
     2.      Hversu mikið fé hefur ráðuneytið fengið frá varnarliðinu eða öðrum til hreinsunar svæðisins?
     3.      Hefur ráðuneytið veitt Reykjanesbæ eða öðrum fé til hreinsunar svæðisins, og þá hve mikið, eða eru áform um slíkt?
     4.      Kemur til greina að afhenda Reykjanesbæ svæðið í áföngum?