Ferill 304. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


126. löggjafarþing 2000–2001.
Þskj. 347  —  304. mál.




Fyrirspurn



til iðnaðarráðherra um meistararéttindi byggingariðnaðarmanna.

Frá Árna R. Árnasyni.



     1.      Við hvaða reglur styðjast stjórnvöld um útgáfu meistarabréfa til þeirra byggingariðnaðarmanna sem luku meistaranámi og prófum samkvæmt fyrri ákvæðum laga þar um en hafa ekki fengið meistarabréf?
     2.      Hvaða leiðir eru þeim nú færar sem hafa lokið námi en ekki prófum undir fyrri ákvæðum nefndra laga til að taka nú próf og öðlast meistaraskírteini?
     3.      Hvaða leiðir eru þeim nú færar til að ljúka námi og prófum til meistaraskírteinis sem hafa hafið nám undir fyrri ákvæðum nefndra laga en ekki lokið því?