Ferill 305. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


126. löggjafarþing 2000–2001.
Þskj. 348  —  305. mál.




Fyrirspurn



til fjármálaráðherra um skattlagningu fríðinda.

Frá Árna R. Árnasyni.



     1.      Við hvaða reglur styðjast stjórnvöld um skattskyldu, framtal, álagningu og innheimtu skatta vegna fríðinda sem fyrirtæki veita starfsmönnum sínum með því að afhenda þeim á undirverði eða án greiðslu þá þjónustu sem þau selja öðrum gegn gjaldi?
     2.      Liggur fyrir í hagtölum um tekjur launamanna hve háum fjárhæðum þær tekjur starfsmanna sem þannig eru greiddar nema og hve hátt hlutfall þær eru af heildartekjum þeirra?
     3.      Liggur fyrir í greiningu tekjuskattsstofns hve háum fjárhæðum tekjuskattur af þessum tekjum nemur?