Ferill 330. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


126. löggjafarþing 2000–2001.
Þskj. 429  —  330. mál.




Frumvarp til laga



um breytingu á lögum nr. 151/1996, um fiskveiðar utan lögsögu Íslands.

Flm.: Svanfríður Jónasdóttir, Sighvatur Björgvinsson, Jóhann Árssælsson,


Sigríður Jóhannesdóttir, Össur Skarphéðinsson.


1. gr.

    Á eftir 6. mgr. 5. gr. laganna kemur ný málsgrein er orðast svo:
    Ráðherra skal, þrátt fyrir ákvæði 2. og 6. mgr., bjóða árlega út veiðiheimildir á norsk- íslenska síldarstofninum. Ráðherra skal ákveða útboðsskilmála og skal þar kveðið á um hámark þess aflamarks sem heimilt er að bjóða í vegna einstaks fiskiskips, skilafrest á tilboðum og önnur atriði er máli skipta vegna útboðsins. Hæstu tilboðum skal jafnan tekið meðan aflaheimildir hrökkva til. Séu tvö eða fleiri tilboð jafnhá en heildaraflamark ekki nægjanlegt til þess að taka þeim að fullu skal tilboðunum tekið með hlutfallslegri skerðingu. Tilboðsgjafi er bundinn af tilboði sínu en á þó rétt á að falla frá því sé um slíka skerðingu að ræða. Aflamark skal skráð á viðkomandi fiskiskip þegar gengið hefur verið frá tryggingu vegna greiðslu. Tekjur af útboði aflaheimilda skulu renna í ríkissjóð.

2. gr.

    Lög þessi öðlast gildi 1. janúar 2001.

Greinargerð.


    Í 3. gr. laga um stjórn veiða úr norsk-íslenska síldarstofninum, nr. 38/1998, segir að sjávarútvegsráðherra skuli fyrir 1. nóvember árið 2000 leggja fyrir Alþingi frumvarp um stjórn veiða úr norsk-íslenska síldarstofninum eftir árið 2000. Þrátt fyrir þetta ákvæði hefur sjávarútvegsráðherra lagt til með frumvarpi að lögin um norsk-íslenska síldarstofninn verði áfram í gildi. Frestun þess að leggja fram nýtt frumvarp um veiðarnar byggir hann á þeirri forsendu að sú efnislega endurskoðun sem mælt er fyrir um í 3. gr. laganna verði framkvæmd samhliða heildstæðri endurskoðun sem nú er unnið að á lögum um stjórn fisk veiða á vegum nefndar sem sjávarútvegsráðherra skipaði á grundvelli ákvæðis til bráðabirgða XXVII í lögum um stjórn fiskveiða, nr. 38 15. maí 1990. Þetta frumvarp gerir hins vegar ráð fyrir að veiðarnar fari fram skv. 5. gr. laganna um fiskveiðar utan lögsögu Íslands og þingmenn Samfylkingarinnar leggja því til breytingar á þeim til samræmis við það sem Samfylkingin leggur til varðandi úthlutun aflaheimilda samkvæmt lögunum um stjórn fiskveiða.     Eins og alkunna er voru veiðar íslenskra fiskiskipa úr norsk-íslenska síldarstofninum ekki stundaðar svo neinu næmi í yfir 30 ár. Á síðustu árum hefur orðið þar breyting á. Norsk-íslenski síldarstofninn hefur verið í framför eftir langvarandi lægð. Með samningum um veiðar úr norsk-íslenska síldarstofninum milli síldveiðiþjóðanna á norðanverðu Atlantshafi, hafa Íslendingar tryggt sér veiðiréttindi úr stofninum á hafsvæðunum utan íslensku fiskveiðilögsögunnar. Vegna þess hve langur tími leið frá því að síldveiðar úr norsk-íslenska síldarstofninum voru stundaðar af íslenskum fiskiskipum var ekki á veiðireynslu að byggja hjá þeim flota sem tekið hefur þátt í veiðunum. Síldveiðiskipin, sem veiðarnar stunduðu fyrir þrjátíu árum, hafa flest horfið úr íslenska flotanum og útgerðir margra þeirra eru hættar störfum. Það fyrirkomulag sem gilt hefur við veiðarnar á undanförnum árum átti ekki að skapa grunn að fastri aflahlutdeild, sbr. álit meiri hluta sjávarútvegsnefndar um frumvarp til laga um veiðar utan lögsögu, 57. mál á 121. þingi, þar sem segir: „Veiðar úr norsk-íslenska síldarstofninum verði á grundvelli leyfa til veiðanna á sambærilegum forsendum og verið hafa. Veiðireynsla úr þessum stofni myndi ekki grunn að fastri aflahlutdeild.“
    Samfylkingin telur að löngu sé tímabært að skipa þessum málum til frambúðar og skapa veiðum úr norsk-íslenska síldarstofninum lagaramma og starfsumhverfi þannig að útgerðir þeirra viti að hverju þær ganga. Lagt er til að um veiðarnar gildi lögin um fiskveiðar utan lögsögu Íslands og að veiðarnar séu boðnar út, einnig að sjávarútvegsráðherra ákveði útboðsskilmála og skal þar kveðið á um hámark þess aflamarks sem heimilt er að bjóða í vegna einstaks fiskiskips, skilafrest á tilboðum og önnur atriði er máli skipta vegna útboðsins.
    Þessi stefna er í samræmi við þá stefnu Samfylkingarinnar að bjóða eigi út nýtingu takmarkaðra gæða sem eru í þjóðareign eða þjóðarforsjá.
    Frumvarp sama efnis var flutt á 122. löggjafarþingi af Sighvati Björgvinssyni og fleiri þingmönnum en varð ekki útrætt.