Ferill 354. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


126. löggjafarþing 2000–2001.
Þskj. 521  —  354. mál.




Fyrirspurn



til heilbrigðisráðherra um örorkubætur.

    Frá Ástu R. Jóhannesdóttur.

    Hve margir öryrkjar misstu bætur á síðasta ári vegna langdvalar á stofnunum? Er von til þess að þeirri reglu verði breytt sem kveður á um að örorkubætur falli niður hjá bótaþegum sem þurfa að dvelja lengur en fjóra mánuði á tveimur árum á stofnunum?