Ferill 176. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
126. löggjafarþing 2000–2001.
Þskj. 527 — 176. mál.
Frumvarp til laga
um Námsmatsstofnun.
(Eftir 2. umr., 13. des.)
1. gr.
Námsmatsstofnun er sjálfstæð stofnun sem heyrir stjórnarfarslega undir menntamálaráðherra.Hlutverk stofnunarinnar er að annast framkvæmd samræmdra prófa á grunn- og framhaldsskólastigi, svo sem mælt er fyrir um í lögum, reglugerðum og aðalnámskrám, auk annarra verkefna á sviði námsmats og rannsókna sem tengjast því svo sem nánar er mælt fyrir um í lögum þessum.
2. gr.
a. sjá um samningu, framkvæmd og úrvinnslu samræmdra prófa og könnunarprófa í grunn- og framhaldsskólum,
b. sjá um birtingu niðurstaðna samræmdra prófa gagnvart nemendum, skólum og fræðsluyfirvöldum og útgáfu heildaryfirlits með niðurstöðum í hverju prófi og prófþáttum eftir skólum og á landsvísu og öðrum upplýsingum sem skýra niðurstöður samræmdra prófa,
c. miðla upplýsingum til skóla um nýtingu og túlkun á niðurstöðum prófa í einstökum skólum þannig að þau nýtist til þróunar skólastarfs þar og
d. vinna að námsmatsrannsóknum og samanburðarrannsóknum við árangur skólastarfs í öðrum löndum.
Stofnunin getur unnið að öðrum verkefnum á sviði námsmats og prófagerðar á grundvelli sérstakra samninga við menntamálaráðuneytið og aðra aðila.
Menntamálaráðherra er heimilt að setja í reglugerð nánari fyrirmæli um verkefni stofnunarinnar.
3. gr.
4. gr.
5. gr.
Stjórnin staðfestir starfsáætlanir stofnunarinnar og fylgist með framkvæmd þeirra. Stjórnin veitir menntamálaráðherra umsögn um ráðningu forstöðumanns.
6. gr.
Ákvæði til bráðabirgða.
Umboð núverandi ráðgjafarnefndar Rannsóknastofnunar uppeldis- og menntamála fellur niður við gildistöku laga þessara.
Núverandi forstöðumaður Rannsóknastofnunar uppeldis- og menntamála gegnir embætti sínu út yfirstandandi skipunartímabil sitt. Að því loknu skal skipa forstöðumann Námsmatsstofnunar í samræmi við ákvæði laga þessara.
Starfsmenn Rannsóknastofnunar uppeldis- og menntamála við gildistöku laga þessara skulu halda óbreyttum starfskjörum.
Námsmatsstofnun tekur við skuldbindingum sem gerðar hafa verið í nafni Rannsóknastofnunar uppeldis- og menntamála við gildistöku laga þessara.