Ferill 388. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


126. löggjafarþing 2000–2001.
Þskj. 638  —  388. mál.




Fyrirspurn



til heilbrigðisráðherra um biðlista hjá Heyrnar- og talmeinastöð Íslands.

Frá Svanfríði Jónasdóttur og Kristjáni L. Möller.



     1.      Hve langur biðtími er að jafnaði eftir þjónustu Heyrnar- og talmeinastöðvar Íslands og hve margir voru á biðlista um síðustu áramót?
     2.      Hvaða áform eru uppi um betri þjónustu stöðvarinnar, þ.m.t. styttri biðtíma og þjónustu við landsbyggðina með heimsóknum?