Ferill 451. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


126. löggjafarþing 2000–2001.
Þskj. 719  —  451. mál.




Fyrirspurn



til samgönguráðherra um fjölda íslenskra kaupskipa.

Frá Guðmundi Hallvarðssyni.



     1.      Hvað eru mörg kaupskip skráð á Íslandi og sigla undir íslenskum fána?
     2.      Hefur kaupskipum fjölgað á íslenskri skipaskrá eftir að stimpilgjöld af skráningu skipa voru afnumin?
     3.      Er ójafnvægi í rekstrarlegu umhverfi íslenskra kaupskipaútgerða samanborið við önnur Norðurlönd? Ef svo er, hverjir eru þá helstu þættir mismunarins?