Ferill 328. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
126. löggjafarþing 2000–2001.
Þskj. 741 — 328. mál.
Svar
viðskiptaráðherra við fyrirspurn Jóhönnu Sigurðardóttur um skuldir fyrirtækja og einstaklinga.
Fyrirspurnin hljóðar svo:
1. Hvernig skiptast heildarskuldir við innlánsstofnanir eftir neðangreindum útlánaflokkum milli einstaklinga annars vegar og fyrirtækja hins vegar:
a. skuldabréfalán,
b. víxillán,
c. innleystar ábyrgðir,
d. yfirdráttur á ávísana- og hlaupareikningi,
e. afurðalán,
f. endurlánað erlent lánsfé?
2. Hvernig var yfirdráttur einstaklinga hjá innlánsstofnunum um síðustu áramót og aftur nú 1. desember í ár? Hvernig hefur meðaltal yfirdráttar breyst á þessu tímabili, hve háar voru yfirdráttarheimildir hjá einstaklingum 1. desember 2000 og hversu margir eru með slíka heimild?
Viðskiptaráðuneytið óskaði eftir upplýsingum frá Seðlabanka Íslands til að svara fyrirspurninni. Í meðfylgjandi töflu koma fram umbeðnar upplýsingar.
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
Prentað upp.
Seðlabankinn hefur hvorki undir höndum upplýsingar um yfirdráttarheimildir einstaklinga hjá innlánsstofnunum né hve margir hafa slíka heimild. Af því leiðir að bankinn hefur ekki upplýsingar um meðaltalsyfirdrátt einstaklinga.