Ferill 470. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
126. löggjafarþing 2000–2001.
Þskj. 749 — 470. mál.
Fyrirspurn
til umhverfisráðherra um aðgöngugjöld að þjóðgörðum.
Frá Ástu Möller.
Mun ráðherra beita sér fyrir því að tekin verði upp aðgöngugjöld að þjóðgörðum, sbr. heimild í 32. gr. laga um náttúruvernd, nr. 44/1999?