Ferill 475. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


126. löggjafarþing 2000–2001.
Þskj. 757  —  475. mál.




Fyrirspurn



til dómsmálaráðherra um stöðugildi lögreglumanna í sveitarfélögum.

Frá Hjálmari Árnasyni.



    Hversu mörg sveitarfélög með 800 íbúa eða fleiri hafa enga löggæslumenn á vakt í byggðarlaginu, sundurliðað eftir sveitarfélögum, íbúafjölda og fjölda löggæslumanna:
       a.      á daginn,
       b.      á kvöldin,
       c.      um helgar?


Skriflegt svar óskast.