Ferill 490. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


126. löggjafarþing 2000–2001.
Þskj. 776  —  490. mál.




Fyrirspurn



til samgönguráðherra um hjólreiðamenn á Reykjanesbraut.

Frá Kolbrúnu Halldórsdóttur.



     1.      Hvernig er gert ráð fyrir að hagsmunum hjólreiðamanna verði gætt í áætlunum um tvöföldun Reykjanesbrautar?
     2.      Hefur samgönguráðuneytið mótað stefnu um aðbúnað og þarfir hjólreiðamanna á þjóðvegum landsins?