Ferill 509. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
126. löggjafarþing 2000–2001.
Þskj. 796 — 509. mál.
Fyrirspurn
til umhverfisráðherra um Landmælingar Íslands.
Frá Guðmundi Hallvarðssyni.
1. Hver var heildarrekstrarkostnaður Landmælinga Íslands síðasta heila starfsárið fyrir flutning stofnunarinnar til Akraness?
2. Hver var heildarrekstrarkostnaður Landmælinga Íslands fyrsta heila starfsárið eftir flutning stofnunarinnar til Akraness?
Skriflegt svar óskast.