Ferill 515. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


126. löggjafarþing 2000–2001.
Þskj. 811  —  515. mál.




Fyrirspurn


til heilbrigðisráðherra um sjálfstætt starfandi heimilislækna.

Frá Ástu Möller og Katrínu Fjeldsted.


    Hvaða ástæður eru fyrir því að heimilislæknar hafa ekki fengið leyfi hjá Tryggingastofnun ríkisins til að starfa sjálfstætt við sérgrein sína á eigin stofum á höfuðborgarsvæðinu undanfarin ár?