Ferill 518. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


126. löggjafarþing 2000–2001.
Þskj. 814  —  518. mál.




Fyrirspurn


til heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra um kostnaðarskiptingu ríkis og sveitarfélaga.

Frá Margréti Frímannsdóttur.


    Hyggst ráðherra leggja til að felld verði brott þau ákvæði laga nr. 97/1990, um heilbrigðisþjónustu, sem fela í sér að sveitarfélögum er ætlað að greiða 15% af stofnkostnaði sjúkrahúsbygginga ásamt 15% hlutdeild í meiri háttar viðhaldi og tækjakaupum þessara stofnana? Ef svo er, hvenær?