Ferill 530. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
126. löggjafarþing 2000–2001.
Þskj. 826 — 530. mál.
Fyrirspurn
til dómsmálaráðherra um hjónabönd útlendinga hér á landi.
Frá Ástu R. Jóhannesdóttur.
1. Hversu margir útlendingar hafa gengið í hjónaband hér á landi undanfarin 10 ár, sundurliðað eftir árum?
2. Hversu margir Íslendingar hafa gengið í hjónaband með erlendum ríkisborgurum undanfarin 10 ár, sundurliðað eftir árum?
3. Hversu margir þeirra erlendu ríkisborgara sem gengu í hjónaband hér á landi koma frá löndum á Evrópska efnahagssvæðinu og hve margir frá öðrum löndum?
Skriflegt svar óskast.