Ferill 535. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
126. löggjafarþing 2000–2001.
Þskj. 831 — 535. mál.
Fyrirspurn
til samgönguráðherra um steinsteypu til slitlagsgerðar.
Frá Gísla S. Einarssyni.
1. Hversu margir kílómetrar af steyptu slitlagi hafa verið lagðir síðan þingsályktun um notkun steinsteypu til slitlagsgerðar á samgönguleiðum var samþykkt 4. júní 1996?
2. Hvað átti ráðherra við þegar hann sagði 14. febrúar sl. í munnlegu svari við fyrirspurn á 70. fundi að notkun steypu hefði ekki reynst sem vonir stóðu til? Hvaðan er sú reynsla komin að steinsteypa hafi enst illa?