Ferill 538. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


126. löggjafarþing 2000–2001.
Þskj. 837  —  538. mál.




Fyrirspurn



til samgönguráðherra um vegamálun hjá Vegagerðinni.

Frá Gunnari Birgissyni.



     1.      Hve mikið af vegamálun er boðið út hjá Vegagerðinni og hve mikið framkvæmir Vegagerðin sjálf?
     2.      Hver er núverandi tækjakostur Vegagerðarinnar í vegamálun?
     3.      Ætlar Vegagerðin að fjárfesta í nýjum tækjabúnaði fyrir vegamálun? Ef svo er, hvað kostar hann, hvenær kemur hann til landsins og hvernig verður fyrirkomulag vegamálunar hjá Vegagerðinni í framtíðinni?