Ferill 545. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


126. löggjafarþing 2000–2001.
Þskj. 848  —  545. mál.




Fyrirspurn



til landbúnaðarráðherra um rannsóknir á sumarexemi í hrossum.

Frá Gísla S. Einarssyni.



     1.      Hvernig gengur átak í rannsóknum á sumarexemi í hrossum?
     2.      Hafa fengist einhverjar niðurstöður?
     3.      Hvernig er sambandi við erlenda aðila háttað varðandi sumarexemrannsóknir?
     4.      Hefur markaðstap vegna sumarexems verið rannsakað?
     5.      Hversu miklu fé hefur verið varið til rannsókna á sumarexemi í hrossum frá því í júní á síðasta ári?


Skriflegt svar óskast.