Ferill 552. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
126. löggjafarþing 2000–2001.
Þskj. 858 — 552. mál.
Frumvarp til laga
um breytingu á lögum nr. 75/1981, um tekjuskatt og eignarskatt, með síðari breytingum.
Flm.: Sigríður Jóhannesdóttir, Guðrún Ögmundsdóttir,
Ögmundur Jónasson, Steingrímur J. Sigfússon,
Guðjón A. Kristjánsson.
1. gr.
2. gr.
Greinargerð.
Á undanförnum missirum hefur nokkuð borið á því að einstaklingar sem fengið hafa framlög úr kjaradeilusjóðum leituðu réttar síns fyrir dómstólum vegna meintrar tvísköttunar þeirra. Ljóst er að framlög launþega í kjaradeilusjóði eru hluti af félagsgjöldum viðkomandi og eru meðhöndluð sem laun og skattlögð samkvæmt því. Þegar launþegi fær framlag úr kjaradeilusjóði sem hann hefur áður greitt í af launum sínum er það framlag skattlagt eins og launatekjur og er það því tvískattað.
Flutningsmenn telja þetta mikið óréttlæti og leggja til að lögum um tekjuskatt og eignarskatt verði breytt á þann veg að framlög til launþega verði undanþegin skattlagningu, eins og nú á t.d. við um greiðslur í lífeyrissjóði. Sú breyting var gerð til að koma í veg fyrir tvísköttun lífeyrisgreiðslna og virðist eðlilegt að líta á framlög úr kjaradeilusjóðum á sama hátt.