Ferill 557. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
126. löggjafarþing 2000–2001.
Þskj. 863 — 557. mál.
Fyrirspurn
til umhverfisráðherra um skýrslur um mat á umhverfisáhrifum.
Frá Halldóri Blöndal.
1. Hvað hefur Skipulagsstofnun ríkisins fjallað um margar skýrslur um mat á umhverfisáhrifum frá því að lög um mat á umhverfisáhrifum, nr. 63/1993, tóku gildi?
2. Hversu mikill kostnaður, á núgildandi verðlagi, hefur hlotist af
a. gerð áðurnefndra matsskýrslna, sundurliðað eftir einstökum framkvæmdum,
b. umfjöllun Skipulagsstofnunar um þær?
Skriflegt svar óskast.