Ferill 563. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


126. löggjafarþing 2000–2001.
Þskj. 869  —  563. mál.




Fyrirspurn



til dómsmálaráðherra um samfélagsþjónustu.

Frá Þorgerði K. Gunnarsdóttur.



    Mun ráðherra beita sér fyrir þeirri breytingu að dómstólar ákvarði hvort samfélagsþjónustu verði beitt í refsimálum, líkt og þeir ákvarða aðrar refsingar í dómsmálum, með tilliti til þess að samfélagsþjónusta er almennt talin refsing við afbrotum?