Ferill 568. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


126. löggjafarþing 2000–2001.
Þskj. 877  —  568. mál.




Frumvarp til laga



um breytingu á lögum um félagslega aðstoð, nr. 118/1993, með síðari breytingum.

Flm.: Ásta R. Jóhannesdóttir, Margrét Frímannsdóttir, Össur Skarphéðinsson.



1. gr.

    5. gr. laganna orðast svo:
    Heimilt er, ef sérstakar aðstæður eru fyrir hendi, að greiða maka eða öðrum þeim sem heldur heimili með elli- eða örorkulífeyrisþega maka- eða umönnunarbætur sem eru allt að 80% af grunnlífeyri og tekjutryggingu almannatrygginga.

2. gr.

    Lög þessi öðlast þegar gildi.

Greinargerð.


    Samkvæmt 5. gr. gildandi laga getur aðeins maki elli- eða örorkulífeyrisþega fengið umönnunargreiðslur, svokallaðar umönnunar- eða makabætur, leggi hann niður störf vegna umönnunar á heimili þeirra.
    Samkvæmt 4. gr. laganna geta framfærendur fatlaðra og langveikra barna fengið umönnunarbætur þar til þau verða 18 ára en jafnframt er heimilt að greiða framfærendum barna með lífshættulega sjúkdóma eða alvarlega fjölfötlun umönnunargreiðslur þar til þau ná 20 aldri. Hér er heimild til að greiða framfærendum almennt umönnunarbætur. Óeðlilegt væri að takmarka þessa heimild við foreldra eingöngu og útiloka þar með aðra sem hafa framfærslu og umönnun barna með höndum. Að sama skapi er óeðlilegt og ósanngjarnt að takmarka heimild til greiðslu bóta skv. 5. gr. laganna við maka eingöngu og útiloka þar með aðra sem með sama hætti annast elli- og örorkulífeyrisþega á heimili sínu.
    Í samræmi við ofangreint er því lögð til sú breyting að heimildin til greiðslu bóta verði ekki bundin við maka eingöngu heldur nái einnig til annarra sem halda heimili með lífeyrisþega og annast hann.
    Á árinu 1994 var unnið rannsóknarverkefnið Daglegt líf á hjúkrunarheimili. Rannsóknarverkefnið var unnið í samvinnu heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytisins, öldrunarlækningadeildar Sjúkrahúss Reykjavíkur, Félagsmálastofnunar Reykjavíkurborgar og nokkurra hjúkrunarheimila. Í framhaldi af verkefninu var sett reglugerð um mat á heilsufari og aðbúnaði íbúa á öldrunarstofnunum. Á sama hátt mætti koma á samræmdu mati á heilsufari og aðbúnaði lífeyrisþega í heimahúsi sem gæti gefið raunsanna mynd af þörf á hjúkrun og annarri aðhlynningu. Við matið mætti hafa vistunarmat það sem nú er byggt á í öldrunarþjónustunni sem viðmið að einhverju leyti.
    Ljóst er að mun fleiri en makar lífeyrisþega vinna umönnunarstörf á heimilum og geta ekki eða takmarkað stundað vinnu utan heimilis vegna þess. Nú þegar legurúmum á sjúkrahúsum fækkar og erfiðara er að fá vistun fyrir þá sem þurfa á umönnun að halda verða heimilismenn og aðrir aðstandendur sjúkra og fatlaðra að taka að sér þessi störf og því er ótækt að takmarka 5. gr. við maka eingöngu.
    Fólk sem annast uppkomin börn sín, foreldra, tengdafólk eða aðra ættingja á ekki rétt á neinum greiðslum frá hinu opinbera samkvæmt gildandi lögum. Það samræmist ekki anda laganna um félagslega aðstoð að fólki sé mismunað á þann hátt sem hér er gert.
    Nútímaáherslur og markmið í heilbrigðisþjónustu eru þau að lögð er áhersla á að sjúkir geti verið eins lengi heima og unnt er og þeir óska og fái þjónustu þar. Sú breyting sem hér er lögð til stuðlar að því að þetta markmið geti náðst og leiðir til sparnaðar í heilbrigðiskerfinu vegna þess að þörf fyrir dýra sjúkrahúslegu og stofnanavist minnkar.
    Á undanförnum árum hefur því oft verið lýst yfir af hálfu íslenskra stjórnvalda að stefnt skuli að því að aldraðir og öryrkjar geti dvalist sem lengst í heimahúsi; það sé hagkvæmasta, besta og manneskjulegasta leiðin varðandi aðbúnað þessa þjóðfélagshóps. Margir lífeyrisþegar sem þarfnast mikillar umönnunar dveljast í heimahúsum. Þeir eru þó mun fleiri sem veldu þann kost að dveljast heima ef þess væri nokkur kostur. Munur á lífskjörum einstaklinga og fjölskyldna í þjóðfélaginu er mjög mikill. Sumir hafa rúmar ráðstöfunartekjur og mikinn tíma fyrir fjölskylduna en aðrir þurfa að vinna langan vinnudag og búa samt við þröngan fjárhag. Vegna bágra kjara er því margri fjölskyldunni ókleift að annast lífeyrisþega inni á heimili. Ef frumvarpið verður samþykkt ættu aðstandendur lífeyrisþega kost á að fá laun fyrir umönnunarstörf í heimahúsi, ekki einungis maki lífeyrisþegans eins og nú er heldur börn og tengdabörn lífeyrisþegans og aðrir sem halda heimili með honum og veita þá umönnun sem viðkomandi þarfnast. Það er löngu tímabært að þessi störf séu metin að verðleikum.
    Flutningsmenn þessa frumvarps hafa lagt fram frumvörp þessa efnis á fyrri þingum: Ásta R. Jóhannesdóttir á 115. löggjafarþingi 1991–92, á 120. löggjafarþingi 1995–96, 121. löggjafarþingi 1996 og Margrét Frímannsdóttir á sama þingi og á 122. löggjafarþingi lögðu framangreindir þingmenn í sameiningu fram frumvarp í þessa veru. Þessi mál voru send til umsagnar og voru umsagnaraðilar undantekningarlaust á því að um mjög þarfar réttarbætur væri að ræða.