Ferill 577. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
126. löggjafarþing 2000–2001.
Þskj. 894 — 577. mál.
Fyrirspurn
til viðskiptaráðherra um uppgjörsaðferðir fjármálafyrirtækja.
Frá Einari K. Guðfinnssyni.
1. Er mat á markaðsverðbréfum – hlutabréfum og skuldabréfum – með sama hætti í ársreikningum fjármálafyrirtækja, þar með talið lífeyrissjóða, fyrir árið 2000 og það var í ársreikningum ársins 1999?
2. Er beitt samræmdum uppgjörsaðferðum vegna markaðsverðbréfa í ársreikningum einstakra fjármálafyrirtækja?
3. Er ástæða til þess að samræma uppgjörsreglur fjármálafyrirtækja að þessu leyti?