Ferill 582. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.


126. löggjafarþing 2000–2001.
Þskj. 920  —  582. mál.




Fyrirspurn



til iðnaðarráðherra um byggðaþróun.

Frá Soffíu Gísladóttur.



    Hefur ríkisstjórn markað stefnu um ákveðinn fjölda sveitarfélaga í landinu þar sem sérstök uppbygging fari fram með tilliti til byggðaþróunar? Ef svo er, hver eru þau sveitarfélög og hvert verður hlutverk þeirra gagnvart öðrum sveitarfélögum með tilliti til byggðaþróunar?