Ferill 608. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
126. löggjafarþing 2000–2001.
Þskj. 978 — 608. mál.
Fyrirspurn
til heilbrigðisráðherra um hátæknisjúkrahús.
Frá Rannveigu Guðmundsdóttur.
Eru uppi áform um að byggja hátæknisjúkrahús hérlendis? Hefur farið fram athugun á því hvar slíkt sjúkrahús yrði reist ef af yrði? Kemur til greina að hafa slíkt hátæknisjúkrahús í landi Vífilsstaða?