Ferill 661. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.


126. löggjafarþing 2000–2001.
Þskj. 1039  —  661. mál.




Fyrirspurn



til samgönguráðherra um öryggi vegfarenda á Norðfjarðarvegi.

Frá Þuríði Backman.



    Til hvaða aðgerða hyggst ráðherra grípa, í samráði við Vegagerðina, til að auka öryggi vegfarenda á Norðfjarðarvegi:
     a.      gagnvart snjóflóðum, m.a. á Oddsdal úr Hátúni og úr Grænafelli innarlega í Reyðarfirði,
     b.      með vegriðum til varnar útafakstri við erfiðar aðstæður, svo sem af völdum hálku og þoku,
     c.      með jarðgöngum milli Norðfjarðar og Eskifjarðar?