Ferill 265. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
126. löggjafarþing 2000–2001.
Þskj. 1095 — 265. mál.
Frumvarp til laga
um framkvæmd samnings um allsherjarbann við tilraunum með kjarnavopn.
(Eftir 2. umr., 23. apríl.)
1. gr.
Bann við tilraunum með kjarnavopn.
2. gr.
Innlent eftirlit.
Geislavarnir ríkisins geta krafist allra upplýsinga og annarra gagna sem nauðsynleg þykja við athugun einstakra mála.
Geislavarnir ríkisins geta að undangengnum dómsúrskurði gert nauðsynlegar athuganir á starfsstöð og lagt hald á gögn þegar ríkar ástæður eru til að ætla að brotið hafi verið gegn lögum þessum. Við framkvæmd athugunar skal lögregla veita Geislavörnum ríkisins nauðsynlega aðstoð.
Á varnarsvæðum fer utanríkisráðherra með lögsögu, sbr. lög um yfirstjórn mála á varnarsvæðunum o.fl.
3. gr.
Alþjóðlegt eftirlit.
Eftirlitsmenn sem starfa á grundvelli samningsins skulu njóta friðhelgi og forréttinda hér á landi eins og kveðið er á um í samningnum.
4. gr.
Reglugerðarheimild.
5. gr.
Refsiákvæði.
Tilraun eða hlutdeild í brotum samkvæmt lögum þessum er refsiverð skv. III. kafla almennra hegningarlaga.
6. gr.
Gildistaka.
Jafnframt bætist nýr töluliður við 6. gr. almennra hegningarlaga, nr. 19/1940, sbr. lög nr. 147/1998, svohljóðandi:
11. Fyrir háttsemi sem greinir í samningi um allsherjarbann við tilraunum með kjarnavopn frá 10. september 1996.