Ferill 696. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.


126. löggjafarþing 2000–2001.
Þskj. 1112  —  696. mál.




Fyrirspurn



til sjávarútvegsráðherra um rekstur skólaskips fyrir grunnskólanemendur.

Frá Kristjáni Pálssyni.



     1.      Hve margir nemendur hafa farið með skólaskipinu Dröfn meðan það hefur þjónað sem slíkt?
     2.      Frá hve mörgum grunnskólum koma þessir nemendur og hve mörgum sveitarfélögum?
     3.      Hver hafa viðbrögð nemenda og kennara verið við ferðum skólaskipsins?
     4.      Hvernig hefur kennsla farið fram um borð í bátnum?
     5.      Hvernig hyggst ráðherra haga rekstri skólaskips í framtíðinni?