Ferill 716. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
126. löggjafarþing 2000–2001.
Þskj. 1163 — 716. mál.
Fyrirspurn
til samgönguráðherra um NMT-farsímakerfið.
Frá Svanfríði Jónasdóttur.
1. Hvernig hefur verð fyrir NMT-þjónustu þróast frá því að kerfið var sett á fót, miðað við verð á mínútu á kvöld- og helgartaxta og dagtaxta, sbr. yfirlit yfir GSM-þjónustu á bls. 28 í skýrslunni Einkavæðing og sala hlutabréfa ríkisins í Landssíma Íslands?
2. Hver hefur rekstrarkostnaður NMT-kerfisins verið, sundurliðað eftir árum frá því að kerfið var sett á fót?
3. Hver hefur fjárfestingarkostnaður við NMT-kerfið verið frá því að það var sett á fót?
4. Að hve miklu leyti er upphaflegur stofnkostnaður NMT-kerfisins afskrifaður?
Skriflegt svar óskast.