Ferill 723. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.


126. löggjafarþing 2000–2001.
Þskj. 1171  —  723. mál.




Fyrirspurn



til heilbrigðisráðherra um geðdeildir Landspítala – háskólasjúkrahúss.

Frá Ástu R. Jóhannesdóttur.



    Hversu margir sjúklingar hafa leitað til geðdeilda Landspítala – háskólasjúkrahúss undanfarna sex mánuði og hversu mörgum hefur þurft að synja um innlögn vegna þess að deildirnar voru yfirfullar?