Ferill 641. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.


126. löggjafarþing 2000–2001.
Þskj. 1235  —  641. mál.




Nefndarálit



um till. til þál. um staðfestingu ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 45/2001, um breytingu á IX. viðauka (Fjármálaþjónusta) við EES-samninginn.

Frá utanríkismálanefnd.



    Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund Stefán Hauk Jóhannesson og Högna S. Kristjánsson frá utanríkisráðuneyti og Jónínu S. Lárusdóttur frá iðnaðar- og viðskipta- ráðuneyti.
    Með tillöguninni er leitað heimildar Alþingis til staðfestingar á ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 45/2001, um breytingu á IX. viðauka (Fjármálaþjónusta) við EES- samninginn, og til að fella inn í samninginn tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2000/46/EB, um stofnun og rekstur rafeyrisstofnana og eftirlit með þeim. Ákvörðunin kallar á lagabreytingar hér á landi.
    Á fundum nefndarinnar var meðal annars spurst fyrir um möguleika rafeyrisfyrirtækja til að stunda lánastarfsemi. Fram kom að með hliðsjón af ákvæði a-liðar 5. mgr. 1. gr. tilskipunarinnar, sem kveður á um að rafeyrisfyrirtæki hafi ekki heimildir til neins konar lánveitinga, verði að ætla að rafeyrisfyrirtæki geti ekki stundað slíka starfsemi.
    Nefndin leggur til að tillagan verði samþykkt.
    Árni R. Árnason var fjarverandi við afgreiðslu málsins.

Alþingi, 8. maí 2001.



Tómas Ingi Olrich,


form., frsm.


Magnús Stefánsson.


Lára Margrét Ragnarsdóttir.



Rannveig Guðmundsdóttir.


Jónína Bjartmarz.


Einar K. Guðfinnsson.



Jóhann Ársælsson.


Steingrímur J. Sigfússon.