Ferill 619. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.


126. löggjafarþing 2000–2001.
Þskj. 1249  —  619. mál.




Nefndarálit



um till. til þál. um staðfestingu breytinga á samningi um Alþjóðastofnun um notkun gervitungla í siglingum (INMARSAT).

Frá meiri hluta utanríkismálanefndar.



    Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund Heiðar Ásberg Atlason frá utanríkisráðuneyti og Gústav Arnar og Hörð Helgason frá Póst- og fjarskiptastofnun.
    Með tillögunni er leitað heimildar Alþingis til að staðfesta breytingar á samningi um Alþjóðastofnun um notkun gervitungla í siglingum (INMARSAT) sem samþykktar voru á þingi aðildarríkja hans í London í apríl 1998 en þær lúta að breytingum á rekstrarformi.
    Gervitungl INMARSAT veita fjarskiptaþjónustu víðs vegar um heim, þ.m.t. talsíma-, telex- og gagnaflutningaþjónustu. Starfsemi INMARSAT hefur í auknum mæli færst yfir í að annast fjarskipti við flugvélar og farartæki á landi auk þess að hafa samband við skip. Fjarskiptamöguleikar INMARSAT-gervitunglanna gegna mikilvægu hlutverki í alheims- neyðar- og öryggiskerfi sem Alþjóðasiglingamálastofnunin hefur komið á fót.
    Með breytingum á rekstrarformi INMARSAT er stofnað nýtt fyrirtæki, Inmarsat Ltd., sem mun gefa út til stofnunarinnar sérstakt hlutabréf sem veitir henni neitunarvald gegn ákveðnum tegundum breytinga á samþykktum fyrirtækisins. Við stofnun hins nýja félags fá undirritunaraðilar upphaflegs rekstrarsamnings INMARSAT hlutabréf í fyrirtækinu sem samsvarar fyrri eignarhlut þeirra í stofnuninni. Með hliðsjón af þeirri þörf sem talin er vera fyrir sameiginlegt eftirlit ríkisstjórna verður aðaltilgangur stofnunarinnar að tryggja að fyrirtækið Inmarsat Ltd. uppfylli skyldur sem á því munu hvíla um að veita þjónustu í sambandi við alheims-neyðar- og öryggiskerfi fyrir siglingar og að fyrirtækið fari að ákveðnum grunnreglum. Utanríkisráðherra fer með hagsmuni og umboð íslenskra stjórnvalda innan INMARSAT-stofnunarinnar í samræmi við skuldbindingar sem Ísland hefur tekist á hendur.
    Meiri hlutinn leggur til að tillagan verði samþykkt.
    Árni R. Árnason var fjarverandi við afgreiðslu málsins.

Alþingi, 8. maí 2001.



Tómas Ingi Olrich,


form., frsm.


Magnús Stefánsson.


Lára Margrét Ragnarsdóttir.



Einar K. Guðfinnsson.


Jónína Bjartmarz.


Rannveig Guðmundsdóttir,


með fyrirvara.



Jóhann Ársælsson,


með fyrirvara.