Ferill 624. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
126. löggjafarþing 2000–2001.
Þskj. 1390 — 624. mál.
Breytingartillögur
við frv. til l. um atvinnuréttindi útlendinga.
Frá Steingrími J. Sigfússyni.
1. Við 3. gr. Í stað orðanna „ Óbundið atvinnuleyfi“ í 4. tölul. og í stað sömu orða hvarvetna annars staðar í frumvarpinu komi (í viðeigandi tölu og beygingarföllum): Ótímabundið atvinnuleyfi.
2. Við 8. gr. 1. mgr. orðist svo:
Tímabundið atvinnuleyfi skal að jafnaði liggja fyrir áður en útlendingur kemur í fyrsta skipti til starfa á Íslandi. Frá þessu má víkja ef sanngirnisástæður eða mannúðarsjónarmið mæla með.
3. Við 11. gr.
a. C-liður falli brott.
b. 3. mgr. orðist svo:
Víkja má frá skilyrðum 1. mgr. ef um er að ræða útlending sem verið hefur í námi hér á landi að lágmarki í þrjú ár og lokið því.