Ferill 619. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
126. löggjafarþing 2000–2001.
Nr. 30/126.
Þskj. 1459 — 619. mál.
Þingsályktun
um staðfestingu breytinga á samningi um Alþjóðastofnun um notkun gervitungla í siglingum (INMARSAT).
Alþingi ályktar að heimila ríkisstjórninni að staðfesta fyrir hönd Íslands breytingar á samningi um Alþjóðastofnun um notkun gervitungla í siglingum (INMARSAT) sem gerðar voru á þingi aðildarríkja INMARSAT í London 20.–24. apríl 1998.
Samþykkt á Alþingi 19. maí 2001.