Reglur um notkun á vél Flugmálastjórnar

Fimmtudaginn 08. nóvember 2001, kl. 13:38:50 (1353)

2001-11-08 13:38:50# 127. lþ. 25.94 fundur 114#B reglur um notkun á vél Flugmálastjórnar# (umræður utan dagskrár), samgrh. (flutningsræða)
[prenta uppsett í dálka] 25. fundur, 127. lþ.

[13:38]

Samgönguráðherra (Sturla Böðvarsson):

Herra forseti. Hér er að nýju efnt til umræðu um notkun ráðherra og ráðuneyta á flugvél Flugmálastjórnar. Umræðan sem þingmaðurinn hefur efnt til og endurtekið hefur borið öll einkenni þess að hann gerir eðlilega notkun flugvélar Flugmálastjórnar tortryggilega.

Flugvél Flugmálastjórnar er fyrst og fremst rekin til þess að sinna verkefnum stofnunarinnar, svo sem flugprófunum, flutningi á starfsmönnum og leitar- og björgunarflugi. Jafnframt er stofnuninni ætlað að sinna ýmsum verkefnum fyrir aðra opinbera aðila í samræmi við fyrirmæli samgrh.

Í skýrum og einföldum viðmiðunarreglum fyrir útleigu á flugvél Flugmálastjórnar eru helstu verkefni flugstarfseminnar skilgreind og jafnframt tilgreint hverjum Flugmálastjórn veitir slíka þjónustu. Meðal þeirra verkefna er að flytja æðstu embættismenn þjóðarinnar þegar þess er óskað. Aðrir opinberir aðilar sem geta fengið afnot af flugvél Flugmálastjórnar eru stofnanir samgrn., Landhelgisgæslan, Almannavarnir, Ratsjárstofnun og loks aðrir aðilar samkvæmt ákvörðun flugmálastjóra.

Flugmálastjórn leggur áherslu á að hún er ekki í samkeppni við flugrekendur um verkefni á almennum markaði heldur sinnir aðeins vel skilgreindum verkefnum fyrir opinbera aðila.

Herra forseti. Samkvæmt þeim reglum sem í gildi eru er gert ráð fyrir því sem einu af verkefnum flugvélar Flugmálastjórnar að flytja æðstu embættismenn þjóðarinnar þegar þess er óskað og hægt er að verða við því. Frá upphafi hefur verið gert ráð fyrir þessu verkefni. Það fer ekki á milli mála að það er hagkvæmt fyrir ríkið að nýta flugvélina í þágu ráðuneytanna þegar þörf er á og hún er ekki að sinna öðrum verkefnum.

Ég tel að það séu ekki miklar fréttir raunar fyrir þingmenn að tími ráðherra er oft knappur til þeirra mörgu verkefna sem þeim eru ætluð vítt og breitt um landið. Þá skiptir verulega miklu máli að velja ferðamáta sem sparar tíma og auðveldar ráðherrum að gegna störfum sínum.

Flugið skapar möguleika á því að fara um landið og sinna erindum og verða við óskum um að mæta á mannamót, sem eru jú hluti af starfsskyldum ráðherra.

Að þingmaðurinn skuli hafa leyft sér að tala um þægindaflug ráðherra líkt og hann hefur látið hafa eftir sér, er óskiljanleg afstaða til verkefna ráðherra og starfsaðstöðu þeirra. Þingmaðurinn hefur einkum beint spjótum sínum að notkun ráðherra á vélinni. Þess ber að geta að á árunum 1998--2001 er notkun ráðuneyta einungis 12% af flugtíma vélarinnar sem er flogið um 550 tíma á ári.

Þingmaðurinn leggur sig allan fram um að gera notkun ráðherra á vélinni tortryggilega. Hann virðist vanmeta hagkvæmni þess að nýta flugið og halda að tími ráðherra sé lítils virði og því óþarfi að nýta flugvélina þegar það er hægt. Það er undarleg þráhyggja þingmannsins að reyna að gera störf samgrh. tortryggileg með því að höfða til þeirra gamaldags viðhorfa að flugferðir hljóti að vera munaður.

Ráðherrar hér á landi hafa mikil samskipti við einstaklinga, fyrirtæki og stofnanir sem koma að þeim málaflokkum sem undir þá heyra. Miklu skiptir að ráðherra geti nýtt tíma sinn sem allra best og haldið góðu sambandi við fólkið í landinu.

Það er augljóst að ráðherra samgöngumála þarf öðru fremur að sinna málefnum utan höfuðborgarsvæðisins. Tímafrek ferðalög skerða möguleikana á slíku og því er nauðsynlegt að stytta ferðatímann sem mest. Oft er það gert með áætlunarflugi eða með því að nýta flugvél Flugmálastjórnar þegar áætlunarflug nýtist ekki sem skyldi og notkun flugvélar Flugmálastjórnar er talin hagkvæm. Þetta eru svo augljós og einföld sannindi að vart þarf að ræða þau hér.

Sú umræða sem þingmaðurinn hefur komið hér af stað ber því vott um að hann velur að rangtúlka hlutina vegna þess að slíkt hentar honum betur. Hann gerir það í skjóli þess að hann sé að sinna eftirlitshlutverki. Með þessum málflutningi ýtir þingmaðurinn undir fordóma gagnvart stjórnmálamönnum, en lýsir umfram allt málefnafátækt Samfylkingarinnar.

Málshefjandi gerði grein fyrir áliti sem lögfræðingur hjá Ríkisendurskoðun hefur sett fram um að ef lagaboð eru túlkuð rúmt verði að telja líklegra en hitt að Flugmálastjórn skuli varðveita farþegalista og leggja inn meðal gersema Þjóðskjalasafnsins.

Vegna þessa álits, sem raunar er umdeilt meðal lögfræðinga, tel ég eðlilegt að flugmálastjóri fari yfir málið með þjóðskjalaverði.

Samgrn. mun auðvitað hér eftir sem hingað til fara að þeim reglum um meðferð bókhaldsgagna sem Ríkisendurskoðun setur stofnunum og ráðuneytum hverju sinni.

Ég vil að lokum geta þess að í samgrn. er í smíðum reglugerð um mannflutninga í loftförum. Þar verða m.a. settar reglur um varðveislu farþegalista í atvinnuflutningum í flugi. Þó er rétt að taka fram að sú reglugerð hefur verið í undirbúningi í nokkurn tíma og er setning hennar á engan hátt tengd því máli sem hér er á dagskrá.