Ferill 28. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


127. löggjafarþing 2001–2002.
Þskj. 28  —  28. mál.




Frumvarp til fjáraukalaga



fyrir árið 2001.

Flm.: Jón Bjarnason, Árni Steinar Jóhannsson, Guðjón A. Kristjánsson.


    1. gr.
    Við 7. gr. fjárlaga fyrir árið 2001 bætist:
    8.23 Að verja allt að 1 milljarði króna til að greiða úr fjárhagsvanda sveitarfélaganna vegna félagslega íbúðakerfisins. Félagsmálaráðherra setur nánari reglur um úthlutunina.

2. gr.

    Lög þessi öðlast þegar gildi.

Greinargerð.


    Frumvarp sama efnis var lagt fram á síðasta þingi en hlaut þá eigi afgreiðslu. Vandi sveitarfélaganna á landinu er síst minni nú en hann hefur verið undanfarin ár og því er talið sjálfsagt að leggja frumvarpið fram aftur. Með samþykkt þess fengist hæfilega rúm fjárheimild til þess að hefja aðgerðir nú þegar.
    Fjárhagserfiðleikar sveitarfélaganna eru ekki síst til komnir vegna skuldbindinga í félagslega húsnæðiskerfinu. Félagsíbúðirnar voru liður í opinberri stefnu stjórnvalda í húsnæðismálum. Ríkisvaldið, sveitarfélög, lífeyrissjóðir og aðilar vinnumarkaðarins sameinuðust um að hrinda þeirri stefnu í framkvæmd víða um land. Það var Alþingi sem setti lögin og ákvað einhliða hvar ábyrgðin ætti að liggja. Og Alþingi ákvað að fela sveitarfélögunum fjárhagslega bakábyrgð á félagslega húsnæðiskerfinu. Meðal annars var lögð á þau innlausnarskylda á félagslegum eignaríbúðum.
    Nú er fjárhagsvandi nokkurra sveitarfélaga orðinn svo mikill að þau eiga í verulegum örðugleikum með að standa við skuldbindingar sínar og jafnframt veita íbúunum lögboðna þjónustu. Þetta ástand er ekki síst að kenna skuldum þeirra við félagslega íbúðakerfið. Auk þess hafa mörg þeirra orðið fyrir miklum tekjumissi vegna brottflutnings íbúanna.
    Í umræðum á síðasta þingi um hlutafélagavæðingu og yfirtöku ríkisins á Orkubúi Vestfjarða kom fram að félagsmálaráðherra hefði skipað nefnd til að móta tillögur um hvernig ætti að leysa fjárþörf félagslega íbúðakerfisins á landsvísu með heildstæðum aðgerðum. Nefnd þessi mun hafa skilað minnisblaði til ráðherra síðastliðið vor, en ekki verður séð að neinar ráðstafanir hafi verið gerðar í framhaldi af því og lítur út fyrir að starf nefndarinnar hafi þar með lognast út af.
    Flutningsmenn þessa frumvarps telja afar brýnt að leysa fjárhagsvanda sveitarfélaga vegna félagslega íbúðarkerfisins heildstætt og á landsvísu og eru ósammála því að einstök sveitarfélög séu þvinguð til að selja eignir sínar til að standa skil á skuldbindingum sem þjóðin öll ber sameiginlega ábyrgð á. Má í því sambandi benda á hvernig farið er að Vestfirðingum þegar þeim er gert að selja orkubú sitt og láta eignarhlutina ganga upp í skuldbindingar við opinbera sjóði eins og Íbúðalánasjóð. Flutningsmenn telja brýnt að leysa með almennum hætti vanda þeirra sveitarfélaga sem nú eiga í fjárhagsörðugleikum vegna skuldbindinga sem þeim var gert að taka á sig í tengslum við félagslega íbúðakerfið.