Ferill 81. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
127. löggjafarþing 2001–2002.
Þskj. 81 — 81. mál.
Fyrirspurn
til iðnaðar- og viðskiptaráðherra um styrkveitingar úr opinberum sjóðum til atvinnuuppbyggingar.
Frá Margréti Frímannsdóttur.
1. Hver er heildarupphæð styrkja sem veittir hafa verið úr opinberum sjóðum til atvinnuuppbyggingar á síðustu þremur árum, sundurliðað eftir sjóðum, árum, verkefnum og landsvæðum?
2. Hversu margir einstaklingar hafa fengið slíka styrki á síðustu þremur árum, sundurliðað eftir kyni umsækjenda, sjóðum, upphæðum, árum, verkefnum og landsvæðum?
Skriflegt svar óskast.