Ferill 85. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
127. löggjafarþing 2001–2002.
Þskj. 85 — 85. mál.
Fyrirspurn
til landbúnaðarráðherra um tillögur vegsvæðanefndar.
Frá Rannveigu Guðmundsdóttur.
1. Hvernig hyggst ráðherra bregðast við tillögum vegsvæðanefndar?
2. Hver er afstaða ráðherra til þess að girða búfé af í beitarhólfum í stað þess að girða vegina af?