Ferill 121. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


127. löggjafarþing 2001–2002.
Þskj. 121  —  121. mál.




Fyrirspurn



til iðnaðar- og viðskiptaráðherra um áhrif nýs byggðakorts ESA á Suðurnesjum.

Frá Kristjáni Pálssyni.



     1.      Hvaða áhrif mun nýtt byggðakort ESA hafa á aukningu hlutafjár í Eignarhaldsfélagi Suðurnesja í samræmi við byggðaáætlun?
     2.      Hvaða áhrif mun það hafa á þátttöku Byggðastofnunar í rekstri Markaðs- og atvinnumálaskrifstofu Reykjanesbæjar samkvæmt samningi?
     3.      Hvaða áhrif mun það hafa á þjónustu Byggðastofnunar á Suðurnesjum að öðru leyti?